Serbnesk-íslenska viðskiptaráðið – Samþykktir

 

  1. grein

Nafn ráðsins er Serbnesk-íslenska viðskiptaráðið, hér eftir nefnt ráðið.

Heimili og varnarþing ráðsins er í Reykjavík og um réttarstöðu þess fer að íslenskum lögum.

I.MARKMIÐ OG STARFSEMI

  1. grein

Markmið ráðsins er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Serbíu og Íslands, ásamt því að efla samvinnu og viðskipti milli fyrritækja beggja landa. Ennfremur að stuðla að eflingu tengla á sviðum menntunar, menningar, viðskipta og stjórnmála.

  1. grein

Í samræmi við markmið ráðsins skal það m.a. vinna að eftirfarandi:

  1. Skipuleggja fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni milli landanna tveggja.
  2. Skipuleggja heimsóknir aðila í viðskiptalífinu til beggja landa.
  3. Standa vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna gagnvart serbneskum og íslenskum yfirvöldum.
  4. Veita beina þjónustu samkvæmt ákvörðun stjórnar, þ.e. veita upplýsingar um viðskiptatengiliði, aðstoða við að koma á viðskiptatengslum á milli fyrirtækja og dreifa upplýsingum er varða viðskipti í löndunum tveimur.

II. FÉLAGAR

  1. grein

Eftirtaldir aðilar geta verið félagsmenn:

Einstaklingar með íslenskan eða serbneskan ríkisborgararétt eða einstaklingar sem reka atvinnustarfsemi í öðru hvoru ríkjanna, sem og samtök þeirra. Heiðursfélagar sem stjórn býður aðild skv. samþykktum þessum.

  1. grein

Sækja þarf skriflega um aðild að félaginu. Stjórn félagsins tekur ákvörðun um félagsaðild. Aðildarfélagar skulu tilkynna skrifstofu ráðsins hverjir fari með félagsaðild fyrir þeirra hönd.

  1. grein

Stjórn félagsins getur lagt það til við aðalfund að tiltekinn einstaklingur (eða einstaklingar) sem stuðlað hefur sérstaklega að eflingu ráðsins, markmiða þess eða tengslum á milli landanna verði gerður að heiðursfélaga þess. Slík tillaga þarf að hljóta samþykki 2/3 hluta atkvæða viðstaddra. Heiðursfélaga skal heimilt að sitja aðalfundi félagsins með málfrelsi og tillögurétt.

  1. grein

Úrsögn úr félaginu þarf að vera skrifleg og tekur gildi frá og með næstu áramótum eftir að hún berst. Úrsögn breytir engu um skyldu til greiðslu árgjalds á yfirstandandi reikningsári.

  1. grein

Stjórn félagsins getur með 2/3 atkvæða ákveðið að vísa félaga úr ráðinu í sérstökum tilvikum, svo sem ef um alvarlegt brot er að ræða gegn hagsmunum eða tilgangi þess, brot á samþykktum þess eða alvarlegt brot á landslögum

III. AÐALFUNDIR

  1. grein

Aðalfund ber að halda eigi síðar en 1. október á hverju ári. Boðað skal til aðalfundar á tryggilegan og skriflegan hátt með minnst 2 vikna fyrirvara. Boðun með tölvupósti og/eða með tilkynningu á vefsíðu ráðsins er talin fullnægjandi.

  1. grein

Allir félagar sem greitt hafa árgjald eiga rétt á því að mæta á fundi ráðsins, bera fram tillögur og greiða atkvæði.

Heiðursfélagar hafa sama rétt og aðrir félagar á fundum ráðsins.

  1. grein

Formaður stýrir aðalfundi eða tilnefnir sérstakan fundarstjóra. Fundarstjóri tilnefnir fundarritara.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Kosning formanns
  3. Kosning stjórnarmanna
  4. Yfirferð yfir fjárhag ársins í samræmi við innheimt árgjöld
  5. Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda
  6. Breytingar á samþykktum
  7. Önnur mál
  1. grein

Lögmætir félagsfundir ráðsins hafa æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Til félagsfundar skal stjórnin boða með minnst sjö virkra daga fyrirvara. Heimilt er að boða til félagsfunda með rafrænum hætti.

IV. STJÓRNIN

  1. grein

Í stjórn félagsins skipa formaður og 6 stjórnarmenn sem kosnir skulu af aðalfundi til tveggja ára í senn á þann hátt að formaður og 3 stjórnarmenn skulu kjörnir á stofnfundi og 3 skipaðir til eins árs.

Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Séu fleiri í framboði til stjórnar en sem nemur þeim fjölda stjórnarsæta sem kosið skal um skal kosning fara fram skriflega og í einu lagi.Hver atkvæðisbær aðalfundargestur má greiða jafnmörgum frambjóðendum atkvæði og nemur fjölda stjórnarsæta sem kosið skal um, en heimilt er að greiða færri frambjóðendum atkvæði. Afl atkvæða ræður úrslitum en falli atkvæði jafnt skal hlutkesti ráða.

Félagar sem hyggjast bjóða sig fram til stjórnarsetu í ráðinu skulu tilkynna formanni eða framkvæmdastjóra það a.m.k. 1 viku fyrir auglýstan aðalfund.

 V. FJÁRMÁL

  1. grein

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

VI. BREYTINGAR Á SAMÞYKKTUM

  1. grein

Tillögur til breytinga á samþykktum skulu berast stjórn í tæka tíð þannig að þær megi kynna í fundarboði aðalfundar. Ákvörðun um breytingar skal taka á aðalfundi og til að tillaga nái fram að ganga þurfa a.m.k. 2/3 fundarmanna að samþykkja hana.

  1. grein
    Tillögur um slit félagsins skulu sæta sömu meðferð og breytingar á samþykktum.

Verði ákvörðun um félagsslit samþykkt skal hreinni eign ráðstafað jafnt til allra félagsmanna.

Reykjavík, Serbnesk-Íslenska viðskiptaráðið 2020

Stjórn